|
,,Ég
er Drottinn Guð þinn, sem leiddi þig
út af Egyptalandi, út úr
þrælahúsinu.
1Þú skalt ekki hafa
aðra guði en mig.
2Þú skalt engar
líkneskjur gjöra þér
né nokkrar myndir eftir því,
sem er á himnum uppi, eður því,
sem er á jörðu niðri, eður
því, sem er í vötnunum
undir jörðinni.Þú skalt
ekki tilbiðja þær og ekki dýrka
þær, því að ég,
Drottinn Guð þinn, er vandlátur
Guð, sem vitja misgjörða feðranna
á börnunum, já í þriðja
og fjórða lið, þeirra sem
mig hata, en auðsýni miskunn þúsundum,
þeirra sem elska mig og varðveita boðorð
mín.
3Þú skalt ekki leggja
nafn Drottins Guðs þíns við
hégóma, því að
Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt,
sem leggur nafn hans við hégóma.
4Minnstu þess að halda
hvíldardaginn heilagan. Sex daga skalt
þú erfiða og vinna allt þitt
verk, en sjöundi dagurinn er hvíldardagur
helgaður Drottni Guði þínum.
Þá skalt þú ekkert verk
vinna og ekki sonur þinn eða dóttir
þín, þræll þinn
eða ambátt þín eða
skepnur þínar, eða nokkur útlendingur,
sem hjá þér er innan borgarhliða
þinna, því að á
sex dögum gjörði Drottinn himin
og jörð, hafið og allt sem í
þeim er, og hvíldist sjöunda
daginn. Fyrir því blessaði Drottinn
hvíldardaginn og helgaði hann.
5Heiðra föður þinn
og móður þína, svo að
þú verðir langlífur í
því landi, sem Drottinn Guð þinn
gefur þér.
6Þú skalt ekki morð
fremja.
7Þú skalt ekki drýgja
hór.
8Þú skalt ekki stela.
9Þú skalt ekki bera
ljúgvitni gegn náunga þínum.
10Þú skalt ekki
girnast hús náunga þíns.
Þú skalt ekki girnast konu náunga
þíns, ekki þræl hans
eða ambátt, ekki uxa hans eða asna,
né nokkuð það, sem náungi
þinn á.``
|